Persónuvernd
Síðast uppfært 8. nóvember 2026
Ferdalag er ferðaskipulag fyrir hópa. Hér kemur fram hvaða upplýsingar við geymum, af hverju og hvað þú getur gert við þær. Fyrirspurnir: [email protected]
Hvað við geymum
Nafn og netfang. Ef þú skráir þig inn með Google: auðkenni Google-aðgangsins.
Allt sem þú og ferðafélagar þínir skráið í ferðir: dagskrá, bókanir, lista, útgjöld og skjöl sem þið hlaðið upp.
Sögu breytinga í hverri ferð.
Innskráningar: IP-tölu og vafra, svo hægt sé að skrá þig út og verjast misnotkun.
Gervigreindarforrit sem þú tengir við aðganginn.
Til hvers
Eingöngu til að reka þjónustuna: svo þú og ferðafélagar þínir getið skipulagt saman. Við sendum tölvupóst með innskráningarkóðum, boðum og áminningum fyrir ferðir; slökkva má á áminningum í stillingum. Engar auglýsingar, engin rakning milli vefja og engin sala gagna.
Hver sér hvað
Ferðafélagar sjá það sem er í ferðinni. Opin síða ferðar sýnir nafn, dagsetningar og eins mikið af dagskránni og eigandinn velur, og dagatalsslóðin þín fyrir ferð aðeins ferðina og tímasetta liði hennar; bókanir, kostnaður, skjöl og ferðafélagar fylgja hvorugu, og opna síðan sýnir athugasemdir aðeins ef eigandinn kveikir á því.
Ef þú tengir gervigreind eins og ChatGPT eða Claude fær hún það sem þú biður hana um að lesa, og fyrirtækið að baki henni fer með það samkvæmt eigin skilmálum.
Hvar gögnin eru
Gögn og skjöl eru á okkar eigin netþjónum. Umferð fer um Cloudflare, sem sér IP-tölur. Google kemur aðeins við sögu ef þú skráir þig inn með Google. Gengi gjaldmiðla er sótt frá Seðlabanka Evrópu án nokkurra persónuupplýsinga. Við teljum heimsóknir með PostHog (netþjónar í Evrópu) án vafrakaka: þangað fer slóð síðunnar (án einkahlekkja) og tegund vafra; IP-talan er aðeins notuð til að telja gesti og er ekki geymd. Þangað fer aldrei nafn, netfang eða efni ferða, og ekki er hægt að þekkja þig aftur milli daga.
Hve lengi
Það sem þú eyðir má endurheimta í 30 daga og hverfur svo. Afrit af gagnagrunni eru geymd í 30 daga. Innskráning rennur út eftir 60 daga án notkunar.
Réttindi þín
Þú getur sótt öll gögnin þín og eytt aðganginum í stillingum. Við eyðingu hverfa nafn þitt, netfang og innskráningar; útgjöld sem þú skráðir í sameiginlegar ferðir haldast nafnlaus svo uppgjör annarra stemmi. Hafðu samband vegna annars. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar.
Vafrakökur
Aðeins nauðsynlegar kökur: innskráning, tungumál og útlit. Engar kökur frá þriðja aðila og heimsóknatalningin notar engar.